Lærum og leikum - Allt
iOS app by Raddlist. Education · Raddlist
- Store rating
- 5 / 5
- Store rating count
- 5
- Download price
- Free to download
- In-app purchases
- Unknown
- Version
- 3.0
- Listing last refreshed
- 2026-09-17
View the original store listing
Store description excerpt
Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla. Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Frá 2017 hafa forrit Raddlistar fengið 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum. Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni. Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone. Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings. Lærum og leikum með hljóðin inniheldur: - Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir - Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur - 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið - Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega - Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni - Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina - Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð - Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði - Hljóðtenging er æfð til að undirbúa læsi og styrkja framburð málhljóðanna - Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum - Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða - R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins) - Fjórir gagnvirkir leikir auk orðforðaaæfinga með þjálfun setninga - Hrós veitt reglulega í f
Review coverage
AppRill has captured 0 reviews for this app. This is a collected sample, separate from the store rating count. Latest review capture: Not captured yet.
Recent captured chart positions
No chart positions have been captured for this app yet.
Chart position, rating count and review coverage do not establish downloads, revenue or profit. Understand the differences.